Það styttist og styttist í komandi tímabil í Olís-deildum karla og kvenna. Olís-deild karla hefst fimmtudaginn 3.september á meðan Olís-deild kvenna hefst laugardaginn 5.september. Handkastið heldur áfram að hita upp fyrir Olís-deildirnar og hefur sent sömu tíu spurningarnar á alla þjálfara deildarinnar í karla og kvenna flokki. Nú er komið að því að sjá hvað þjálfari Stjörnunnar í Olís-deild karla Sverrir Eyjólfsson hefur að segja. Ertu ánægð/ur með hvernig undirbúningstímabilið hefur gengið? Hverjar voru áherslur liðsins á undirbúningstímabilinu? Hvernig er staðan á leikmannahópnum rétt fyrir mót? Hvernig metur þú þær mannabreytingar sem hafa orðið á liðinu í sumar? Hverjar telur þú vera helstu áskoranir þínar og liðsins í vetur? Hverjar eru væntingar þínar til tímabilsins? Hverju ert þú spennt/astur fyrir tímabilinu? Ef þú mættir velja þér einn leikmann úr öðru liði í deildinni til að fá í þitt lið - Hver væri það og afhverju? Ef þú mættir breyta einni reglu í handboltanum - Hver yrði breytingin? Hvaða lið telur þú að verði deildarmeistari í vetur?
Undirbúningstímabilið hefur heilt yfir gengið vel og erum við nokkuð sáttir.
Áherslur hafa helst verið að koma inn nýjum leikmönnum. Einnig með nýjum þjálfurum koma nýjar áherslur sem við höfum verið að vinna í, ásamt líkamlegu formi og styrk.
Hún er nokkuð góð, eitthvað hnjask hér og þar en almennt eru allir klárir í bátana.
Við erum mjög ánægðir með strákana sem hafa komið til liðs við okkur og hafa þeir komið sterkir inn, einnig hafa yngri leikmenn staðið sig vel og verður gaman að sjá þá þróast í vetur.
Breiddin mætti vera betri hjá okkur, þannig það verður skemmtilegt verkefni að koma yngri leikmönnum félagsins í hlutverk hjá liðinu í vetur og búa til breidd.
Að við náum að bæta okkur jafnt og þétt yfir tímabilið, ef við náum upp aga og liðsheild í okkar leik þá verðum við flottir.
Ég er spenntur að sjá hvernig deildin þróast, ég hugsa að hún sé jafnari en oft áður, einnig verður gaman að sjá hvaða ungu leikmenn springa út.
Margir frábærir leikmenn, ætli ég tæki ekki Frey Aronsson.
Ég myndi vilja fá vestið aftur í 7 á 6.
Haukar

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.