Moldóvinn á leið til Ísafjarðar frá Akureyri
Egill Bjarni Friðjónsson

Samkvæmt heimildum Handkastsins er moldóvska skyttan Igor Chiseliov á leið til Harðar frá Ísafirði og mun leika með liðinu í Grill66-deild karla á komandi tímabili.

Chiseliov er því á leið aftur í íslenskan handbolta eftir aðeins nokkurra mánaða fjarveru. Hann lék með Þór á Akureyri á síðustu leiktíð en samningur hans við félagið var ekki endurnýjaður eftir tímabilið.

Chiseliov sem er 34 ára kom til Þórs sumarið 2025 frá Radovis í Norður-Makedóníu. Hann hafði þá víða komið við á ferlinum og meðal annars leikið í Indlandi, Moldóvu, Kósovó, Slóvakíu, Tyrklandi og Norður-Makedóníu.

Dvölin á Akureyri varð þó ekki alveg eins og vonast var til. Chiseliov lék 21 leik í Olís-deildinni og skoraði 29 mörk, eða 1,4 mörk að meðaltali í leik. Þórsarar höfnuðu í 9. sæti deildarinnar og í mars var staðfest að Chiseliov myndi ekki halda áfram með liðinu.

Hörður leikur í Grill66-deildinni á komandi tímabili og fær þar inn afar reyndan leikmann en liðið tapaði gegn Stjörnunni í úrslitum umspilsins um laust sæti í Olís-deildinni á síðustu leiktíð. Liðið hefur misst fjölmarga leikmenn frá síðustu leiktíð og hefur Handkastið ekki enn vitneskju um að liðið hafi leikið æfingaleik á undirbúningstímabilinu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top