Ribe-Esbjerg á toppnum í Danmörku og Íslendingaliðin á sigurbraut í Svíþjóð
Ribe Esbjerg

Það var nóg af leikjum í kvöld á Norðurlöndunum en stærstu tíðindin voru í Danmörku þar sem Álaborg sem menn töldu óstöðvandi töpuðu sannfærandi á heimavelli gegn Fredericia, 26-33.

En þá að Íslendingaliðunum, Ribe-Esbjerg halda flottri byrjun sinni áfram og eru einir á toppi deildarinnar eftir sigur á Kolding á heimavelli, 31-28. GOG geta jafnað þá á toppi deildarinnar ef þeir sigra TTH Holstebro annað kvöld. Elvar Ásgeirsson átti fínan leik eins og svo oft áður fyrir heimamenn, hann skoraði aðeins þrjú mörk úr átta skotum en gaf fimm stoðsendingar.

Ringsted hafa farið illa af stað í ár án Ísaks Gústafssonar og hann var áfram fjarri góðu gamni vegna meiðsla þegar samherjar hans töpuðu fyrir nýliðum Skive á útivelli í miklum markaleik, 40-35.

Skanderborg vann þá góðan sigur á Nordsjælland með minnsta mun, 33-34. Kristján Örn Kristjánsson, Donni var sem fyrr flottur í liði Skanderborg en hann skoraði níu mörk úr þrettán skotum og bætti við tveimur stoðsendingum. Skanderborg hafa verið vel af stað og unnið tvo af fyrstu þremur leikjum sínum.

Í kvennadeildinni tapaði Horsens á heimavelli gegn Sønderjyske, 21-25 en Katrín Tinna Jensdóttir skoraði eitt mark úr einu skoti og fékk að auki eina brottvísun fyrir heimakonur.

Í efstu deild kvenna í Noregi unnu Larvik stórsigur á Follo á útivelli, 24-40. Dana Björg Guðmundsdóttir komst ekki á blað fyrir gestina en hún klikkaði á báðum skotum sínum. Larvik hefur unnið báða leiki sína til þessa.

Að lokum hófust 16 liða úrslitin í sænska bikarnum í kvöld og sænsku meistararnir riðu á vaðið þegar kvennalið Sävehof vann fyrri leikinn gegn Boden á útivelli með tveimur mörkum, 28-30. Elín Klara Þorkelsdóttir átti fínan leik og skoraði sex mörk.

Rétt eins og kvennamegin riðu sænsku meistararnir á vaðið karlamegin þegar Kristianstad tók á móti Lugi þar sem íslensku strákarnir voru í stóru hlutverki líkt og í seinustu leikjum. Heimamenn unnu leikinn þar sem fátt var um varnir en leiknum lauk 42-37. Einar Bragi Aðalsteinsson skoraði fimm mörk, Baldur Fritz Bjarnason bætti við þremur mörkum og Andri Erlingsson skoraði eitt. Ólafur Guðmundsson var einnig í leikmannahópi liðsins en hann skoraði ekki að þessu sinni.

Úrslit kvöldsins:

Ribe-Esbjerg 31-28 Kolding

Skive 40-35 Ringsted

Nordsjælland 33-34 Skanderborg

Horsens 21-25 Sønderjyske

Follo 24-40 Larvik

Boden 28-30 Sävehof

Kristianstad 42-37 Lugi

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top