Króati gengur til liðs við Hörð

Grill66-deildarlið Harðar frá Ísafirði hefur fengið erlendan leikmann í sínar raðir en Lovro Kresic hefur samið við félagið fyrir komandi tímabil.

Kresic er króatískur leikmaður sem getur leikið bæði sem leikstjórnandi og sem á vinstri skytta. Hann hefur víðtæka reynslu úr handboltanum og meðal annars leikið í Noregi, Ísrael, Íran og Bosníu. Hann hefur síðustu ár leikið í bosnísku deildinni og kemur nú til Ísafjarðar þar sem Hörður teflir fram mjög breyttu liði frá síðustu leiktíð.

Kresic er ekki eini reynslumikli erlendi leikmaðurinn sem gengur til liðs við Hörð fyrir tímabilið. Igor Chiseliov hefur einnig fengið félagaskipti yfir í Hörð frá Þór Akureyri.

Handkastið greindi frá því í vikunni að Chiseliov væri á leið til Ísafjarðar. Hann er 34 ára og kom til Þórs sumarið 2025 frá Radovis í Norður-Makedóníu.

Moldóvinn á leið til Ísafjarðar frá Akureyri

Miklar breytingar hafa orðið á leikmannahópi Harðar frá síðustu leiktíð og verður spennandi að sjá hvernig nýtt lið Ísfirðinga kemur til með að líta út þegar keppni hefst en fyrsti leikur Grill66-deildarinnar fer fram annað kvöld.

Fyrsti leikur Harðar í Grill66-deild karla er á laugardaginn þegar ÍR kemur í heimsókn á Ísafjörð. Flautað verður til leiks klukkan 17:00. Hörður átti frábært tímabil á síðustu leiktíð og komst alla leið í úrslitaeinvígi um sæti í Olís-deildinni, þar sem Stjarnan hafði betur, 3-0.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top