
Ari Magnússon hefur framlengt samningi sínum við Grill66-deildarlið Fjölnis. Ari gerir eins árs samning við félagið en félagið tilkynnti tíðindin í gær. Ari gekk til liðs við Fjölni frá HK fyrir síðasta tímabil. ,,Ari átti mjög gott fyrsta tímabil í Grafarvoginum. Hann tók miklum framförum eftir því sem leið á veturinn, bæði varnar- og sóknarlega, og vann sér fljótt inn mikilvægt hlutverk í liðinu," segir í tilkynningunni frá Fjölni. Meistaraflokksráð karla fagnar því að Ari verði áfram í Fjölnisbúningnum. „Það gleður okkur mikið að Ari hafi framlengt samning sinn við félagið. Hann átti frábært tímabil í fyrra og sýndi miklar framfarir beggja vegna vallarins. Við höfum mikla trú á honum og hlökkum til að sjá hann halda áfram að þróast og taka að sér enn stærra hlutverk með liðinu.“ Ari er sömuleiðis ánægður með að halda áfram í Grafarvoginum: „Það er heiður að halda áfram í Grafarvoginum með öflugt verkefni fyrir höndum. Ég spenntur fyrir öðru tímabili með strákunum í gulu.“ Fjölnir tekur á móti Hvíta riddaranum í 1.umferð Grill66-deildarinnar á laugardaginn klukkan 15:30.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.