Holstebro sótti stig til GOG
(Egill Bjarni Friðjónsson)

Einn leikur fór fram í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld þegar TTH Holstebro mætti GOG á útivelli í hörkuleik.

Jóhannes Berg Andrason skoraði tvö mörk úr þremur skotum og gaf tvær stoðsendingar en leikurinn endaði með jafntefli 29-29. Holstebro átti möguleika á því að taka bæði stigin en brást bogalistin í lokasókninni.

Ribe-Esbjerg eru því áfram einir á toppi deildarinnar og eina liðið sem hafa unnið alla þrjá leikina til þessa. GOG eru stigi á eftir í öðru sætinu en Holstebro eru með þrjú stig í sjöunda sætinu.

Úrslit kvöldsins:

GOG 29-29 TTH Holstebro

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top