Ómar Ingi rúmliggjandi með hita – Missti af stórslagnum
Frank Hoermann

Ómar Ingi Magnússon var fjarverandi þegar þýsku meistararnir í SC Magdeburg unnu Füchse Berlin, 36-32, í stórslag þýsku Bundesligunnar í gær. Landsliðsfyrirliðinn glímir við veikindi og lá heima með hita.

Ómar Ingi hafði tilkynnt sig veikan fyrir leikinn og gat því ekki tekið þátt í stórslagnum. Þýska blaðið Bild greindi nánar frá því að Ómar hafi verið rúmliggjandi með hita. 

Magdeburg lét fjarveru hans þó ekki stöðva sig og vann 36-32 eftir að Füchse hafði leitt 14-13 í hálfleik. Þetta var annað einvígi liðanna á aðeins tólf dögum en Magdeburg vann einnig Ofurbikar Þýskalands gegn Berlín, 38-31, í lok ágúst. 

Gísli Þorgeir Kristjánsson lét mikið að sér kveða fyrir Magdeburg, skoraði fimm mörk og gaf sex stoðsendingar, en fékk rautt spjald þegar um sjö mínútur voru eftir. Elvar Örn Jónsson lék einnig stórt hlutverk í vörn Magdeburg og skoraði eitt mark í leiknum.

Magnus Saugstrup var markahæstur Magdeburg með sjö mörk en Mathias Gidsel skoraði sjö fyrir Füchse. 

Ekki liggur fyrir að svo stöddu hvort veikindin komi til með að halda Ómari Inga lengur frá keppni. Næsti leikur SC Magdeburg er strax á sunnudaginn gegn nýliðunum í HBW Balingen-Weilstetten á útivelli í þýsku Bundesligunni. Balingen hefur unnið fyrstu tvo leiki sína á tímabilinu og eru á toppi deildarinnar ásamt Magdeburg.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top