Íslendingaliðin mætast í úrslitum Ofurbikar Íberíuskagans
Barcelona

Það var nóg af vera af leikjum hjá Íslendingaliðum um alla Evrópu í kvöld en aðalatriðið var þegar ofurbikar Íberíuskagans fór fram en fyrir þá sem ekki vita er ofurbikar Íberíuskagans ákveðin ofurbikar þar sem efstu tvö liðin úr Portúgölsku deildarinnar mæta Spænsku meisturunum og bikarmeisturunum á Spáni í undanúrslitum og úrslitum.

Undanúrslitin fóru fram í kvöld en þar mættust fyrst Barcelona og Porto í Íslendingaslag. Þar höfðu Barcelona betur í miklum markaleik, 39-37. Janus Daði Smárason skoraði þrjú mörk fyrir nýja lið sitt og Viktor Gísli Hallgrímsson kom við sögu í markinu hjá Barcelona. Í liði Porto skoraði Þorsteinn Leó Gunnarsson þrjú mörk. Í hinum leik kvöldsins unnu Sporting góðan sigur á Bidasoa, 31-29 og tryggðu sér sæti í úrslitunum en Orri Freyr Þorkelsson var sem fyrr í liði Sporting en því miður höfum við ekki upplýsingar um frammistöðu hans í kvöld.

Í næstefstu deild Þýskalands, Bundesliga 2 mættu Leipzig í heimsókn til Grosswallstads og unnu flottan sigur, 28-33. Blær Hinriksson hafði hægt um sig að þessu sinni og skoraði aðeins eitt mark úr einu skoti fyrir gestina sem hafa byrjað tímabilið á tveimur sigrum úr fyrstu tveimur leikjunum.

Sveinn Jóhannsson spilaði sinn fyrsta leik fyrir Chambery í frönsku úrvalsdeildinni þegar hans menn tóku á móti stórliði PSG. Chambery hélt vel í við stórliðið en á endanum tókst gestunum að landa stigunum tveimur með þriggja marka sigri, 29-32. Sveinn skoraði þrjú mörk úr fjórum skotum og fékk eina brottvísun að auki.

Tumi Steinn Rúnarsson spilaði einnig sinn fyrsta leik fyrir nýtt lið þegar hann og liðsfélagar hans í Bärnbach-Köflach í austurrísku úrvalsdeildinni unnu flottan útisigur á Atzgersdorf, 25-30. Tumi átti flottan leik fyrir gestina en hann skoraði átta mörk úr tíu skotum og gaf fjórar stoðsendingar að auki.

Úrslit kvöldsins:

Barcelona 39-37 Porto

Sporting 31-29 Bidasoa

Grosswallstadt 28-33 Leipzig

Chambery 29-32 PSG

Atzgersdorf 25-30 Bärnbach-Köflach

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top