Annað veifið spretta upp ný dómarapör hér á Íslandi sem er vitaskuld gríðarlega ánægjulegt og mikilvægt. Endurnýjun þarf að vera þar alveg eins og í hópi leikmanna, þjálfara, stjórnarmanna og sjálfboðaliða. Eitt ungt dómarapar hefur verið að ryðja sér til rúms undanfarið og ætla þeir sér stærri hluti á næstu árum. Þetta eru þeir Oliver Bjarkason og Jakob Felix Pálsson sem eru tiltölulega nýlega byrjaðir að munda flautuna. Handkastið heyrði í Oliver og fékk hann aðeins til að segja okkur frá hvað fékk þá félaga til að fara í dómgæsluna, hvernig HSÍ hefur hjálpað þeim og hvað þeir eru spenntir fyrir komandi áskorunum í dómarastarfinu. "Við félagarnir byrjuðum að flauta í kjölfarið á meiðslum sem við báðir lentum í. Við vorum báðir að stíga upp úr langtíma hnémeiðslum á sama tíma. Jakob úr krossbandaslitum og ég sjálfur úr liðþófarifi. Þetta er náttúrulega sú hreyfing sem var hvað líkust því að spila handbolta og litum við upphaflega á þetta sem hluti af endurhæfingu. Þetta greip okkur strax og urðum við mjög spenntir fyrir dómgæslu. Við byrjuðum á því að bjóða okkur fram í dómgæslu í yngri flokkum til að byggja upp reynslu á seinasta tímabili. Það bara ýtti enn frekar undir áhugann á dómgæslu" "Á nokkrum mánuðum tók þetta svolítið yfir áhugann á því að spila, þar sem ástríða á dómgæslu og meiðsli spiluðu inn í en okkur fannst mikilvægasti þátturinn að vera ennþá inn á vellinum og hluti af leiknum í breyttu hlutverki" "Þetta er auðvitað ákveðið draumadjobb fyrir háskólanema eins og okkur en við erum að stunda nám við Háskólann í Reykjavík. Ég er í íþróttafræði og Jakob í fjármálaverkfræði. Okkur finnst frábært að vera ennþá í íþróttinni og fá inn laun upp í skólagjöldin. Það hefur verið til fyrirmyndar hvernig HSÍ hefur tekið á móti okkur á sem nýjum dómurum. Sambandið hefur haft mikið fyrir því að hjálpa okkur að þróa okkur alveg frá því við byrjuðum að sýna þessu áhuga. Þeir leyfðu okkur að fylgja EHF pari í framkvæmd leiks og fylgjast með hvernig þeir hugsa leikinn. Við höfum fengið ráðgjöf og leiðsögn eftirlitsmanna sem hefur verið ómetanlegt" "Við erum mjög spenntir fyrir tímabilinu og næstu árum í þessu hlutverki. Við teljum að dómgæsla líkt og þjálfun, sjálfboðastörf og stjórnarstörf bjóði upp á frábær tækifæri fyrir einstaklinga sem eru að leggja skóna á hilluna sama hver sú ástæða getur verið, til að vera ennþá hluti af þjóðaríþróttinni" bætti Oliver Bjarkason, einn af nýjustu dómurum landsins við.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.