Markahæstu leikmenn Olís kvenna eftir 1.umferð
HSÍ / Mummi Lú

2.umferðin í Olís-deild kvenna hefst í kvöld með tveimur leikjum. Stjarnan og Fram mætast í Heklu Höllinni í Garðabæ klukkan 18:00 og í seinni leik dagsins tekur Selfoss á móti Gróttu í sannkölluðum nýliðaslag klukkan 18:00. Tveir leikir fara síðan fram annað kvöld og á Sunnudaginn fer einn leikur fram.

Athyglisverðasti leikur umferðarinnar er sennilega stórleikur Vals og ÍBV í N1-höllinni að Hlíðarenda sem fer fram á Sunnudagskvöldið klukkan 18:00. Þar vill Valur eflaust bæta fyrir afar dapra frammistöðu gegn nýliðum Selfoss á sigri gegn ÍBV sem situr í 3.sæti deildarinnar.

10.umferðin:
Föstudagur:
18:00 Stjarnan - Fram
18:00 Selfoss - Grótta

Laugardagur:
13:30 HK - ÍR
17:00 KA/Þór - Haukar

Sunnudagur:
18:00 Valur - ÍBV

Hér má sjá markahæstu leikmenn Olís-deildar kvenna eftir 1.umferðina:

  1. Jóhanna Margrét Sigurðardóttir (Haukar) - 15 mörk
  2. Katrín Scheving Thorsteinsson (Grótta) - 13 mörk
  3. Hulda Dagsdóttir (Fram) - 10 mörk
  4. Sandra Erlingsdóttir (ÍBV) - 8 mörk
  5. Joan Rúnadóttir Johannesen (KA/Þór) - 8 mörk
  6. Valgerður Elín Snorradóttir (Stjarnan) - 7 mörk
  7. Alexandra Ósk Viktorsdóttir (ÍBV) - 7 mörk
  8. Elínborg Katla Þorbjörnsdóttir (Fram) - 7 mörk
  9. Hulda Hrönn Bragadóttir (Selfoss) - 6 mörk
  10. Ásthildur Bertha Bjarkadóttir (ÍR) - 6 mörk

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top