
Orri Freyr Þorkelsson mun yfirgefa portúgalska stórliðið Sporting CP að yfirstandandi tímabili loknu samkvæmt heimildum Handkastsins. Ekki liggur fyrir hvert för hans verður heitið en íslenski landsliðsmaðurinn hefur verið orðaður við fjölmörg sterk félög víðs vegar um Evrópu. Orri Freyr hefur verið í herbúðum Sporting frá árinu 2023 og hefur á þeim tíma fest sig í sessi hjá félaginu og íslenska landsliðinu. Nú stefnir hins vegar í að þetta verði hans síðasta tímabil í Lissabon. Nafn Orra hefur verið tengt við fjölmörg félög í Evrópu og þar á meðal hefur VfL Gummersbach í þýsku Bundesligunni verið nefnt til sögunnar. Guðjón Valur Sigurðsson hefur stýrt liðinu frá árinu 2020 og framlengdi á dögunum samning sinn við félagið til ársins 2029. Undir hans stjórn hefur Gummersbach farið úr þýsku B-deildinni í hóp sterkustu liða Bundesligunnar. Þá leika landsliðsmennirnir Elliði Snær Viðarsson og Teitur Örn Einarsson með Gummersbach. Elliði Snær er samningsbundinn félaginu til ársins 2029 en Teitur Örn framlengdi í vor til sumarsins 2027. Garðar Ingi Sindrason gekk einnig til liðs við Gummersbach frá FH í sumar og samdi til þriggja ára. Orri Freyr er 27 ára gamall vinstri hornamaður sem er uppalinn hjá Haukum og hefur verið fastamaður í íslenska landsliðinu undanfarin ár.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.