HK 2 og Víkingur mættust í dag í Grill 66 deild kvenna en leikið var í Kórnum. Víkings stelpur byrjuðu mun betur og voru komnar í 3-10 eftir rúmlega 10 mínútna leik. Áfram héldu þær að bæta við forskotið og náðu mest 9 marka forskoti. 9 mörk skildu liðin einmitt að þegar gengið var inn til búningsherbergja í hálfleik en hálfleikstölur voru 10-19 fyrir gestina úr Safamýri. Fyrstu 20 mínúturnar í seinni hálfleik hélt forskot Víkings stelpna áfram í 6-8 mörkum en heimastúlkur í HK áttu flottan lokakafla síðustu 2 mínútur og náðu að minnka í 2 mörk en nær komust þær ekki og urðu lokatölur 24-26 fyrir Víking. Ólöf Ásta Arnþórsdóttir skoraði 10 mörk fyrir Víking og Þórdís Idda Ólafsdóttir varði 1 skot. Hjá HK 2 var Auður Guðmundsdóttir markahæst með 6 mörk og Freydís Ragna Kristjánsdóttir varði 12 skot. Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.