Þrjú Íslendingalið áttu leik í dag í norsku úrvalsdeildinni á meðan Skanderborg komst upp í þriðja sætið í Danmörku. Elverum eru áfram ósigraðir á toppi deildarinnar í Noregi en þeir sigruðu Sandnes á útivelli í dag, 27-33. Tryggvi Þórisson var í liði gestanna í dag en hann klikkaði á eina skoti sínu í leiknum. Annað lið í Noregi sem er ósigrað er Sandefjord en þeir hafa þó aðeins leikið tvo leiki á meðan Elverum hefur leikið þrjá en Sandefjord vann flottan útisigur á Bergsøy í miklu markaleik, 36-39. Sigurjón Guðmundsson spilaði hluta leiksins í marki Sandefjord og átti fínan leik, hann varði sex skot af þeim tuttugu og tveimur sem hann fékk á sig eða 27% markvarsla. Ísak Steinsson átti fínan leik fyrir Drammen sem tapaði með minnsta mun fyrir Follo á heimavelli, 27-28. Ísak varði sjö skot af þeim tuttugu og þremur sem hann fékk á sig eða 30% markvarsla. Í Dönsku úrvalsdeildinni unnu Skanderborg góðan heimasigur á Kolding, 32-26 en Kristján Örn Kristjánsson, Donni skoraði fjögur mörk úr sjö skotum fyrir liðið og gaf að auki fimm stoðsendingar fyrir heimamenn. Skanderborg eru í þriðja sæti deildarinnar með átta stig eftir fimm leiki. Ribe-Esbjerg og GOG eru í sætunum fyrir ofan með níu stig. Við endum yfirferðina í Svíþjóð þar sem Kristianstad eru í góðum málum í átta liða úrslitum bikarsins en þeir unnu Tyresö á útivelli, 31-37. Allir Íslendingarnir í liði Kristianstad áttu ágætis leik en Baldur Fritz Bjarnason skoraði fjögur mörk, Andri Erlingsson skoraði einnig fjögur mörk á meðan Einar Bragi Aðalsteinsson skoraði þrjú mörk og fékk eina brottvísun. Úrslit dagsins: Sandnes 27-33 Elverum Bergsøy 36-39 Sandefjord Drammen 27-28 Follo Skanderborg 32-26 Kolding Tyresö 31-37 Kristianstad

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.