
Haukar unnu fjögurra marka sigur á Val, 28-24, í Olís deild kvenna á Ásvöllum í kvöld. Haukar leiddu með tveimur mörkum í hálfleik, 13-11, og náðu að halda Val fyrir aftan sig allan síðari hálfleikinn. Jóhanna Margrét Sigurðardóttir átti stórleik fyrir Hauka með 12 mörk. Fyrri hálfleikurinn var lengst af hnífjafn. Haukar náðu fjögurra marka forskoti í stöðunni 9-5 en Valur svaraði með góðum kafla og jafnaði í 9-9. Haukar náðu aftur frumkvæðinu undir lok hálfleiksins og fóru með 13-11 forystu inn í leikhlé. Valur byrjaði síðari hálfleikinn af krafti og jafnaði metin í 13-13. Haukar náðu þó fljótlega aftur yfirhöndinni og þegar um 18 mínútur voru eftir var staðan 17-14. Haukar héldu áfram að byggja ofan á forskotið. Jóhanna Margrét Sigurðardóttir var í aðalhlutverki í sókninni og heimakonur komust í 23-17 þegar tíu mínútur voru eftir. Þar með var brekkan orðin brött fyrir Valskonur. Valur reyndi að saxa á forskotið á lokakaflanum en Haukar héldu gestunum í hæfilegri fjarlægð. Guðrún Hekla Traustadóttir skoraði þrjú af síðustu fjórum mörkum Vals, en Haukar héldu út og fögnuðu 28-24 sigri. Jóhanna Margrét Sigurðardóttir var markahæst Hauka með 12 mörk. Embla Steindórsdóttir og Rakel Oddný Guðmundsdóttir skoruðu þrjú mörk hvor. Sara Sif Helgadóttir varði 16 skot í marki Hauka. Hjá Val var Guðrún Hekla Traustadóttir markahæst með 10 mörk og Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir skoraði sjö. Auður Ester Gestsdóttir, Elísa Elíasdóttir og Laufey Helga Óskarsdóttir skoruðu tvö mörk hver. Hafdís Renótudóttir varði 17 skot í marki Vals. Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.