Óttaðist um sjónina og handboltaferilinn
Philipp Szyza / AFP

Kent Robin Tønnesen, leikmaður Flensburg-Handewitt, lenti í alvarlegum veikindum í sumarfríinu sem ógnuðu sjón hans og settu spurningarmerki við áframhaldandi handboltaferil. Nú sér loksins fyrir endann á erfiðu tímabili hjá Norðmanninum.

Hinn 35 ára gamli Kent Robin Tønnesen hefði seint getað ímyndað sér að sumarfrí í Króatíu myndi enda með baráttu um að halda sjóninni.

Tønnesen fékk ristil í andlitið á meðan hann var í fríinu og þurfti að hætta ferðalaginu og halda heim. Við frekari rannsóknir kom í ljós að staðan var mun alvarlegri en talið hafði verið í fyrstu.

Veikindin höfðu náð til svæðisins í kringum hægra auga Tønnesen og í versta falli var hætta á alvarlegum afleiðingum fyrir sjón hans. Á sama tíma vaknaði óvissa um hvort hann gæti snúið aftur á handboltavöllinn.

Fyrstu vikurnar voru afar erfiðar að sögn Tønnesen og þurfti hann að halda sig alfarið frá handbolta. Síðar gat hann byrjað að æfa varlega á ný en líkaminn þurfti tíma til að venjast álaginu.

Nú eru hins vegar loksins góð tíðindi.

Tønnesen er kominn aftur til æfinga með Flensburg-Handewitt og nálgast endurkomu á völlinn. Enn liggur þó ekki fyrir hvort hann verði tilbúinn í leik liðsins á sunnudaginn.

Það sem hófst sem dramatísk veikindi í sumarfríinu hefur því breyst í kapphlaup við tímann fyrir norsku hægri skyttuna.

Tønnesen er samningsbundinn Flensburg-Handewitt til sumarsins 2027.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top