Tíu þjóðir hafa lýst yfir áhuga á að halda Evrópumót karla í handbolta árið 2034. Danmörk er meðal þeirra en endanleg ákvörðun um gestgjafa verður tekin á þingi Handknattleikssambands Evrópu, EHF, árið 2027. Auk Danmerkur hafa Króatía, Svíþjóð, Austurríki, Serbía, Slóvenía, Holland, Norður-Makedónía, Tyrkland og Lúxemborg lýst formlega yfir áhuga. Lúxemborg hefur aldrei áður haldið lokamót Evrópumótsins. Stefnt er að því að mótið fari fram dagana 10.–29. janúar 2034. Þá verða átta liða úrslit í fyrsta sinn hluti af keppnisfyrirkomulagi EM karla. „Mikill áhugi aðildarsambanda okkar á að halda EM 2034 staðfestir áframhaldandi aðdráttarafl stærsta landsliðsmóts okkar og mikilvægi þess fyrir þróun handboltans um alla Evrópu,“ sagði Martin Hausleitner, framkvæmdastjóri EHF. Þjóðirnar tíu hafa frest til 1. mars 2027 til að skila inn formlegum umsóknum. Gestgjafinn verður síðan valinn á þingi EHF í Ljubljana 18. september sama ár.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.