Sigurmundur Gísli Unnarsson, ungur markvörður ÍBV, var einn af sjö leikmönnum í Cell Tech-liði 3. umferðar Olís-deildar karla eftir frammistöðu sína í endurkomusigri Eyjamanna gegn Fram. Rætt var um leikinn og frammistöðu Sigurmundar í nýjasta þætti Handkastsins en hinn ungi markvörður átti stóran þátt í því að Eyjamenn sneru leiknum sér í vil. „Sigurmundur Gísli mætti í mark Eyjamanna og var með 38% markvörslu, tíu varða bolta. Drengur sem er í 2008 landsliðinu og á framtíðina fyrir sér. Er hann ekki lykilþátturinn í því að ÍBV sneri þessum leik sér í vil?“ spurði Sérfræðingurinn. Stymmi klippari tók undir það og hrósaði Sigurmundi mikið. „Engin spurning. Vörnin small og hann kemur inn í markið og tekur marga góða bolta. Hann kemur þeim aftur inn í leikinn. Ég hef heyrt mikið um þennan dreng síðustu ár og þá umræðu að þetta verði sennilega liðsfélagi Viktors Gísla í íslenska landsliðinu eftir nokkur ár. Hann er með flottan ramma og flottar hreyfingar,“ sagði Stymmi klippari. Sigurmundur, sem er fæddur árið 2009, er því aðeins 17 ára gamall en hefur þegar fengið tækifæri með ÍBV í Olís-deildinni og sýndi gegn Fram hvað í honum býr. ÍBV verður í eldlínunni í kvöld þegar liðið fær stigalaust lið HK í heimsókn til Vestmannaeyja í fyrsta leik 4. umferðar. Flautað verður til leiks klukkan 18:00. Eyjamenn eru með fjögur stig eftir fyrstu þrjár umferðirnar og hafa unnið tvo leiki í röð, gegn Selfossi og Fram.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.