
Árni Þór Grétarsson, einn dyggasti sjálfboðaliði og stuðningsmaður Handknattleiksdeildar Selfoss, er látinn eftir baráttu við krabbamein. Handknattleiksdeild Selfoss greindi frá andláti hans í dag. Árni Þór lést á Sjúkrahúsi Suðurlands í gær eftir snarpa baráttu við illvígt krabbamein. Árni Þór var um árabil einn öflugasti sjálfboðaliði Handknattleiksdeildar Selfoss og kom að starfi deildarinnar með fjölbreyttum hætti. Hann var sjálfboðaliði á heimaleikjum meistaraflokka félagsins auk þess að leggja hönd á plóg á fjölmörgum leikjum og mótum yngri flokka. Hann sá meðal annars um samfélagsmiðla og myndatökur og var lykilmaður í starfsemi SelfossTV. Þá gegndi hann í gegnum tíðina hlutverkum liðsstjóra, fararstjóra og bílstjóra og fylgdi yngri sem eldri iðkendum félagsins í keppnisferðir innanlands og utan. Á tímabili fór varla fram leikur hjá yngri flokki Selfoss nema Árni Þór var viðstaddur. „Með Árna Þór er genginn einstakur öðlingur sem Handknattleiksdeild Umf. Selfoss, allir iðkendur og sjálfboðaliðar deildarinnar þakka fyrir góða samveru og einstaka vináttu um leið og fjölskyldu hans eru færðar innilegar samúðarkveðjur,“ segir meðal annars í tilkynningu Handknattleiksdeildar Selfoss. Framlag Árna Þórs til íþróttastarfsins á Selfossi var viðurkennt sérstaklega í ágúst síðastliðnum. Þá var hann sæmdur gullmerki Ungmennafélags Selfoss sem Sverrir Einarsson, varaformaður félagsins, afhenti honum. Við sama tilefni sæmdi Jón Halldórsson, formaður Handknattleikssambands Íslands, Árna Þór gullmerki HSÍ fyrir framlag hans til handknattleikshreyfingarinnar. Handkastið átti alla tíð afar góð samskipti við Árna Þór. Hann var ávallt tilbúinn að rétta Handkastinu hjálparhönd þegar eftir því var leitað og var jafnframt dyggur hlustandi Handkastsins frá fyrsta degi. Handkastið sendir fjölskyldu Árna Þórs, vinum hans og öllum innan Handknattleiksdeildar Selfoss innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Árna Þórs Grétarssonar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.