Ribe-Esbjerg óvænt úr leik í bikarnum og sænska deildin farin af stað
Kristianstad

Það var nóg af leikjum í kvöld á Norðurlöndunum en meðal annars hófst sænska úrvalsdeildin karlamegin á meðan það voru bikarleikir á dagskránni í Danmörku og Noregi.

Topplið Ribe-Esbjerg er óvænt fallið úr leik í danska bikarnum eftir tap á heimavelli gegn Mors-Thy, lokatölurnar urðu 26-29 fyrir gestina. Elvar Ásgeirsson skoraði þrjú mörk úr sjö skotum og gaf þrjár stoðsendingar fyrir heimamenn sem geta nú sett allan fókusinn á deildarkeppnina en þeir eiga stórleik framundan gegn GOG sem eru jafnir liðinu í efsta sæti deildarinnar en þau mætast næstkomandi mánudagskvöld.

Fyrsta umferð sænsku deildarinnar fór fram í kvöld þegar heil umferð var leikin.

Svíþjóðarmeistarar Kristianstad tóku á móti Hammarby en úr varð bráðfjörugur og spennandi leikur þar sem heimamenn tókst að vinna með minnsta mun, 28-27. Íslendingarnir í liði Kristianstad voru drjúgir en Einar Bragi Aðalsteinsson skoraði sex mörk úr tólf skotum, gaf sex stoðsendingar og fékk eina brottvísun, Andri Erlingsson átti flottan leik með fjögur mörk úr sex skotum og gaf þrjár stoðsendingar, Baldur Fritz Bjarnason skoraði eitt mark úr einu skoti og að lokum fékk Ólafur Guðmundsson eina brottvísun.

Karlskrona tók á móti Alingsås þar sem gestirnir reyndust sterkari og unnu öflugan sigur, 28-34. Arnór Viðarsson skoraði fjögur mörk úr tíu skotum fyrir heimamenn og gaf þrjár stoðsendingar að auki.

Amo mætti í heimsókn til Helsingborgar og mætti þar heimamönnum í hörkuleik. Arnar Birkir Hálfdánsson var að venju í liði Amo en hann átti erfitt uppdráttar í leiknum. Gestirnir leiddu með einu marki í hálfleik, 17-18 en heimamönnum tókst að jafna leikinn en Amo tókst þó að halda í jafnteflið, lokatölur 32-32 og gott stig fyrir gestina.

Að lokum unnu Sävehof 26-30 sigur á Önnereds í grannaslag en bæði lið leika í Gautaborg. Birgir Steinn Jónsson var í liði gestanna og var fastur fyrir í vörninni.

Fjögur Íslendingalið voru í eldlínunni í norska bikarnum í kvöld og þrjú þeirra fóru áfram eftir miserfiða leiki. Elverum fóru þægilega í gegnum Fjellhammer en þeir unnu á útivelli 21-32 þar sem Tryggvi Þórisson skoraði eitt mark fyrir gestina.

Sigurjón Guðmundsson átti flottan leik í liði Sandefjord sem slóg út Arendal eftir framlengdan leik, 31-32. Hann varði sjö skot af þeim tuttugu og tveimur sem hann fékk á sig eða 32% markvarsla.

Nýliðarnir í norsku deildinni Viking féllu úr leik með minnsta mun eftir tap á heimavelli, 29-30 fyrir Kristiansand. Tryggvi Garðar Jónsson átti þrátt fyrir það mjög góðan leik fyrir heimamenn en hann skoraði sex mörk úr tíu skotum.

Að lokum unnu Drammen góðan útisigur á Fyllingen, 25-29 þar sem Ísak Steinsson var sem fyrr í liði Drammen en að svo stöddu eru engar upplýsingar um hans frammistöðu í liði gestanna.

Úrslit kvöldsins:

Ribe-Esbjerg 26-29 Mors-Thy

Fjellhammer 21-32 Elverum

Arendal 31-32 Sandefjord

Viking 29-30 Kristiansand

Fyllingen 25-29 Drammen

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top