HK þarf áfram að glíma við töluverð meiðsli í leikmannahópnum en Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari liðsins, gaf Handkastinu stöðuna á þremur leikmönnum sem hafa verið frá vegna meiðsla. Andrew Wisman er enn að jafna sig eftir fótbrot og verður ekki klár í slaginn á næstu vikum. Vonir standa til að hann geti snúið aftur í nóvember. Daninn sem gekk í raðir HK í sumar hlaut svokallað Jones-brot, beinbrot á utanverðri rist. Hann gekk undir aðgerð vegna meiðslanna. „Andrew er í sínu ferli vegna fótbrotsins og hann kemur ekkert til baka fyrr en í nóvember, vonandi,“ sagði Halldór Jóhann í samtali við Handkastið. Styrmir Hugi Sigurðarson er sömuleiðis frá vegna meiðsla en hann glímir við beinmar í hné. Erfitt er að tímasetja nákvæmlega hvenær hann verður leikfær á ný. „Styrmir er með beinmar í hnénu sem mun taka einhvern tíma. Beinið er að verða gróið og því erfitt að segja til um tímasetningu á endurkomu en líklega verður það á svipuðum tíma og hjá Andrew.“ Betri tíðindi eru af Jóhanni Birgi, sem er farinn að nálgast endurkomu. Vonast er til þess að hann fái leyfi til að hefja leik á ný innan tveggja vikna. Jóhann Birgir nefbrotnaði í sama leik og Styrmir Hugi og Andrew meiddist á Hafnarfjarðarmótinu í ágúst. HK vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu í síðustu viku þegar liðið lagði ÍBV með einu marki í dramatískum leik í Vestmannaeyjum. Færeyingurinn Trúgvi Hávardsson tryggði HK sigurinn með eftirminnilegu sigurmarki frá miðju.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.