
Tvö Íslendingalið áttu leik í kvöld í Noregi og í Danmörku en Elverum er áfram á toppnum í norsku úrvalsdeildinni eftir mjög öruggan útisigur á Bergsøy. Lokatölurnar urðu 22-37 fyrir Elverum en Tryggvi Þórisson skoraði ekkert mark að þessu sinni fyrir gestina sem byrja tímabilið á fimm sigrum. Í Danmörku unnu lærisveinar Arnórs Atlasonar í TTH Holstebro góðan heimasigur á Kolding, 37-31 eftir að hafa verið þremur mörkum yfir í hálfleik, 19-16. Jóhannes Berg Andrason skoraði ekki í kvöld en fékk eina brottvísun. Benedikt Gunnar Óskarsson er ennþá fjarverandi en það styttist í að hann snúi aftur á parketið. Eftir erfiða byrjun í deildinni hafa Holstebro unnið seinustu tvo leiki sína og sitja í sjötta sæti deildarinnar eftir sjö leiki en flest önnur lið í deildinni hafa aðeins leikið sex leiki. Úrslit kvöldsins: Bergsøy 22-37 Elverum Holstebro 37-31 Kolding

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.