
Mikkel Hansen virðist enn eiga erfitt með að halda sig frá handboltanum þrátt fyrir að ferlinum sé lokið. Danska stórstjarnan eyddi heilu kvöldi á handboltaleikjum en þegar blaðamaður HBOLD.dk ætlaði að ræða við hann var svarið skýrt: Hann væri ekki lengur handboltamaður. Mikkel Hansen lagði skóna á hilluna eftir glæstan feril en handboltinn virðist enn skipa stóran sess í lífi hans. Hansen gerði sér lítið fyrir og mætti á tvo handboltaleiki sama kvöldið. Fyrst fór hann til Helsingør þar sem Nordsjælland Håndbold tók á móti Skjern áður en hann hélt áfram til Farum til að fylgjast með bikarleik HØJ og Aalborg. Þar voru fjölmörg kunnugleg andlit fyrir Hansen, þar á meðal fyrrum liðsfélagar og leikmenn sem hann lék með í danska landsliðinu. Eftir leikinn í Farum kom blaðamaður HBOLD.dk auga á Hansen og hugðist fá hjá honum nokkur orð. Hansen áttaði sig hins vegar fljótt á hvert stefndi þegar blaðamaðurinn nálgaðist með hljóðnemann. „Ég er ekki handboltamaður,“ sagði Hansen, breiddi út faðminn og hló. Þegar blaðamaðurinn reyndi áfram endurtók Hansen einfaldlega: „Ég er ekki handboltamaður.“ Það mátti þó hafa ákveðnar efasemdir um þá yfirlýsingu enda hafði einn besti handboltamaður síðari ára nýverið eytt kvöldinu í að horfa á tvo handboltaleiki. Hansen gaf þó blaðamanninum vísbendingu um hvaða íþrótt hann væri tilbúinn að ræða þessa dagana. „Ég spila tennis. Bara tennis ef þú vilt tala um það.“ Þar með var viðtalstilraun HBOLD.dk í raun úr sögunni. Handboltaskórnir og klístrið virðast því hafa vikið fyrir tennisspaðanum hjá Mikkel Hansen – jafnvel þótt hann virðist enn hafa töluverðan áhuga á því sem gerist inni á handboltavellinum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.