
Það var risaleikur í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld þegar tvö efstu liðin mættust, Ribe-Esbjerg og GOG en bæði lið voru ósigruð með ellefu stig eftir sex leiki. Leikurinn var mjög jafn til að byrja með en gestirnir voru þó ögn sterkari og leiddu í hálfleik með einu marki, 13-14. Heimamönnum tókst að jafna og komast yfir þegar rétt rúmar tíu mínútur voru eftir en þá tóku gestirnir við sér og unnu lokakaflann með fimm mörkum, 11-6 og unnu þar með leikinn. Lokatölur urðu 31-36 og GOG því einir á toppi deildarinnar. Elvar Ásgeirsson átti fínan leik fyrir heimamenn en hann skoraði sex mörk úr níu skotum og bætti við þremur stoðsendingum en besti maður vallarins var leikmaður GOG, Svisslendingurinn Manuel Zehnder sem skoraði tíu mörk fyrir gestina. Úrslit kvöldsins: Ribe-Esbjerg 31-36 GOG

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.