Ný Þjóðarhöll í Laugardal á að vera fullbúin í janúar árið 2030, ári áður en Ísland verður einn gestgjafa heimsmeistaramóts karla í handbolta árið 2031. RÚV greinir frá því að borgarráð hafi samþykkt verksamning milli Þjóðarhallar ehf. og Íslenskra aðalverktaka um hönnun og byggingu hallarinnar. Samkvæmt verksamningnum á verktaki að skila fullbúinni Þjóðarhöll eigi síðar en 25. janúar 2030. Umsamið verð fyrir verkið er rúmlega 16,8 milljarðar króna með virðisaukaskatti. Reykjavíkurborg og ríkið standa saman að verkefninu en ríkið ber 55 prósent kostnaðarins og Reykjavíkurborg 45 prósent. Þjóðarhöllin á að taka 8.600 áhorfendur í sæti og verður gríðarleg breyting á aðstöðu til stórmótahalds í handbolta hér á landi. Ísland verður, ásamt Danmörku og Noregi, gestgjafi heimsmeistaramóts karla í handbolta árið 2031. Einn riðill mótsins á að fara fram hér á landi og er ný Þjóðarhöll í Laugardal grunnforsenda þess að Ísland geti staðið að mótshaldinu. Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs, segir í samtali við RÚV að mikilvægt sé að framkvæmdir gangi samkvæmt áætlun, meðal annars vegna heimsmeistaramótsins. „Það liggur á að byggja því að það er gert ráð fyrir því að HM í handbolta verði hérna 2031,“ sagði Einar við RÚV. Gangi framkvæmdir samkvæmt verksamningnum verður því um það bil ár frá því að Þjóðarhöllin verður afhent þar til heimsmeistaramótið fer fram. Í sumar var ákveðið að ganga að tilboði Íslenskra aðalverktaka og samstarfsfyrirtækja þeirra um hönnun og byggingu hallarinnar. Með samþykkt borgarráðs á verksamningnum hefur verkefnið nú tekið enn eitt stórt skref í átt að framkvæmdum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.