Skanderborg áfram í danska bikarnum
Kristinn Steinn Traustason

Skanderborg mætti Skive í danska bikarnum í kvöld en sæti í átta liða úrslitunum var í húfi og var þetta seinasti leikurinn í sextán liða úrslitunum.

Heimamenn byrjuðu betur og voru töluvert sterkari aðilinn í fyrri hálfleiknum og leiddu með þremur mörkum í hálfleik, 17-14.

Heimamenn héldu áfram í byrjun seinni hálfleiks og náðu mest fimm marka forystu en þá tóku gestirnir við sér. Þeir jöfnuðu leikinn þegar minna en fimmtán mínútur voru eftir og eftir það tóku þeir völdin og leiddu það sem eftir leið af leiknum, lokatölur 33-35 fyrir Skanderborg. Kristján Örn Kristjánsson, Donni kom lítið við sögu í leiknum og klikkaði á eina skoti sínu í kvöld.

Þegar hefur verið dregið í átta liða úrslitin en Skanderborg mæta Mors-Thy en hinir leikir eru Holstebro á móti Fredericia, Sønderjyske taka á móti Álaborg og Bjerringbro/Silkeborg mæta Skjern.

Úrslit kvöldsins:

Skive 33-35 Skanderborg

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top