Dainis Kristopans, stórskytta MT Melsungen, verður frá keppni næstu vikurnar vegna meiðsla á hægra hné. Fjarvera hans hefur opnað dyrnar fyrir landsliðsmanninn, Reyni Þór Stefánsson í óvenjulegu hlutverki hjá liðinu. Kristopans hefur gengist undir aðgerð vegna meiðslanna og samkvæmt þýskum fjölmiðlum reiknar Melsungen ekki með lettnesku stórskyttunni aftur í leik fyrr en í fyrsta lagi um miðjan nóvember. Það er töluvert áfall fyrir Melsungen enda Kristopans lykilmaður liðsins og einn reyndasti leikmaður þess. Hann mun samkvæmt því missa af að minnsta kosti fimm leikjum í þýsku Bundesligunni auk fjögurra leikja sem eftir eru í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Nikolaj Enderleit önnur hægri skytta MT Melsungen hefur einnig glímt við meiðsli og hefur Liðið því verið án sinna hefðbundnu örvhentu leikmanna í stöðunni. Það hefur orðið til þess að Reynir Þór Stefánsson hefur þurft að leysa hægri skyttustöðuna þrátt fyrir að vera rétthentur. Reynir Þór hefur nýtt tækifærið vel og vakið athygli fyrir frammistöðu sína að undanförnu. Hann skoraði meðal annars sjö mörk gegn Wisla Plock í Meistaradeildinni og fékk einnig mikið lof fyrir frammistöðu sína þegar Melsungen lagði þýsku meistarana í Magdeburg að velli.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.