Mathias Gidsel, stórstjarna Füchse Berlín og danska landsliðsins, glímir við meiðsli sem hann varð fyrir á heimsmeistaramóti félagsliða í Egyptalandi á dögunum. Gidsel fékk þungt högg á lærið í leik Füchse gegn Veszprém og gat af þeim sökum ekki tekið þátt í óvæntu tapi þýska liðsins gegn Al Ahly frá Egyptalandi í gær. Fjarvera Gidsels vakti athygli en Bob Hanning, einn af forráðamönnum Füchse Berlín, segir í samtali við Sport Bild að ástæðan hafi einfaldlega verið sú að Daninn hafi ekki verið leikfær. „Hann var ekki hvíldur gegn Al Ahly vegna þess að hann væri þreyttur eða þyrfti á pásu að halda, heldur einfaldlega vegna þess að hann gat ekki spilað,“ sagði Hanning. Ljóst er að Gidsel verður heldur ekki með þegar Füchse mætir brasilíska liðinu Pinheiros í leik um fimmta sæti mótsins á fimmtudaginn. Óvissa ríkir jafnframt um hvort hann verði orðinn leikfær þegar Füchse snýr aftur til Þýskalands og mætir Bietigheim í Bundesligunni um helgina. Við gerum allt sem við getum til að koma honum í stand fyrir helgina en það er heldur ekki öruggt að hann geti spilað gegn Bietigheim,“ sagði Hanning.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.