Álex Mozas, þjálfari Bidasoa Irun, vakti sérstaka athygli á hæfileikaríkum og ungum leikmönnum FH fyrir viðureign liðanna í Evrópukeppninni í kvöld. Spænski miðillinn Diario Vasco lýsir ungviði FH sem „insultante juventud“ - orðalagi sem vísar til þess hversu óvenju ungir margir af lykilmönnum liðsins eru. Mozas tók sjálfur í sama streng. „Við munum mæta leikmönnum sem ég er viss um að verður talað um í framtíðinni hjá stórliðum Evrópu,“ sagði þjálfarinn. Þar beinast augun meðal annars að hinum 18 ára Ómari Darra Sigurgeirssyni og 16 ára undrabarninu Brynjari Narfa Arndal, sem þrátt fyrir ungan aldur hafa þegar gert sig gildandi í einu sterkasta félagsliði Íslands um þessar mundir. Það verður því ekki síst áhugavert að fylgjast með þessu tvíeyki hjá FH í kvöld og sjá hvort þeir nái að sýna á stóra sviðinu hvers vegna þeir eru þegar farnir að vekja slíka athygli.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.