Erfiður dagur fyrir Íslendingana í Noregi
Kristinn Steinn Traustason

Þrjú Íslendingalið áttu leik í norsku úrvalsdeildinni í dag en því miður töpuðu öll liðin sínum leik en Sandefjord tapaði sínum fyrsta leik og nýliðar Viking fengu skell gegn Kolstad.

Sandefjord voru taplausir eftir fjóra leiki fyrir leik dagsins gegn Fjellhammer á útivelli, Sigurjón Guðmundsson var í liði gestanna en hann átti erfitt uppdráttar í dag og varði aðeins þrjú skot af þeim nítján sem hann fékk á sig eða 16% markvarsla. Heimamenn reyndust töluvert sterkari og unnu góðan sigur, 36-27 eftir að hafa verið 19-13 yfir í hálfleik.

Sandefjord sitja í fjórða sæti deildarinnar, stigi eftir Kolstad með þó tvo leiki inni, tveimur stigum eftir Runar með einn leik inni og fjórum stigum á eftir Elverum sem eru efstir og ósigraðir með fullt hús stiga eftir sex leiki.

Drammen eru í sætinu fyrir ofan fallsætin eftir stórt tap í dag á heimavelli gegn Bergen, 19-31 en það er óhætt að segja að heimamenn hafi aldrei mætt til leiks í dag. Ísak Steinsson var þó líklega skásti maður heimamanna í dag en hann varði sjö skot af þeim tuttugu og fjórum sem hann fékk á sig eða 29% markvarsla.

Að lokum töpuðu nýliðar Viking stórt gegn Kolstad á heimavelli, 24-37. Þeir héldu vel í við gestina til að byrja með og voru til dæmis aðeins marki undir í hálfleik, 14-15. Tryggvi Garðar Jónsson skoraði fjögur mörk úr sjö skotum og gaf eina stoðsendingu fyrir heimamenn. Viking sitja í sætinu fyrir neðan Drammen en bæði lið eru með fjögur stig rétt eins og Arendal og Bergen sem eru í sætunum fyrir ofan.

Úrslit dagsins:

Fjellhammer 36-27 Sandefjord

Drammen 19-31 Bergen

Viking 24-37 Kolstad

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top