Valur vann Gróttu á Hlíðarenda
Jón Gautur Foto

Valur og Grótta mættust á Hlíðarenda í sjöttu umferð Olís deildar kvenna í dag. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og staðan í hálfleik var 11-10 fyrir heimakonur. Valur var sterkari aðilinn í síðari hálfleik og landaði að. lokum fimm marka sigri en loktölur á Hlíðarenda voru 26-21 fyrir Val.

Valur er í þriðja sæti deildarinnar með átta stig á meðan Grótta er í því sjötta með fjögur stig.

Atkvæðamestar í liði Vals voru Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir og Guðrún Hekla Traustadóttir báðar með fimm mörk. Laufey Helga Óskarsdóttir skoraði fjögur og aðrar minna.

Atkvæðamest í liði Gróttu var Katrín S Scheving Thorsteinsson en hún skoraði sex mörk. Eva Björk Davíðsdóttir kom á eftir henni með fjögur mörk.

Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top