Haukar taplausar á toppnum eftir sigur á ÍR
Egill Bjarni Friðjónsson

Haukar og ÍR áttust við í Hafnarfirði í leik sem var að klárast í sjöttu umferð Olís deildar kvenna. Eftir jafnan fyrri hálfleik voru Haukar einu marki yfir í hálfleik 17-16. Haukastúlkur gáfu í í síðari hálfleik og landaði liðið að lokum fimm marka sigri 33-28.

Haukar eru á toppnum í Olís deild kvenna og eru taplausar með 12 stig. ÍR er í fjórða sæti deildarinnar með átta stig.

Rakel Oddný Guðmundsdóttir var markahæst í liði Haukastúlka en hún skoraði níu mörk. Jóhanna Margrét Sigurðardóttir og Sonja Lind Sigsteinsdóttir skoruðu báðar sjö mörk og aðrar minna.

Sara Dögg Hjaltadóttir skoraði tíu mörk í liði gestanna í dag. Karen Tinna Demian skoraði sex og aðrar minna.

Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top