ÍBV og Fram mættust í Vestmannaeyjum í leik sem var að ljúka. Mikið jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og staðan var 16-16 í hálfleik. Spennan var ekki minni í seinni hálfleiknum en á endanum voru það heimakonur í ÍBV unnu með einu marki 30-29 og Sandra Erlingsdóttir reyndist hetja heimakvenna. Atkvæðamest í liði ÍBV var Sandra Erlingsdóttir en hún skoraði tíu mörk. Birna Berg Haraldsdóttir skoraði fimm og aðrar minna. Atkvæðamest í liði Fram var Sóldís Rós Ragnarsdóttir en hún skoraði 11 mörk. Lena Margrét Valdimarsdóttir skoraði sjö mörk. Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.