Stjarnan lagði KA eftir frábæra byrjun á síðari hálfleik
Sævar Jónasson

Stjarnan vann sinn annan sigur í Olís-deild karla í kvöld þegar liðið lagði KA, 35–33, í Garðabæ í 6. umferð deildarinnar. Ísak Logi Einarsson skoraði ellefu mörk fyrir heimamenn sem voru þremur mörkum yfir í hálfleik, 17–14.

Jafnræði var með liðunum í upphafi en KA var skrefinu á undan fram að stöðunni 8–8. Þá skoruðu Stjörnumenn fjögur af næstu fimm mörkum og komust í 12–9. Munurinn varð mestur fjögur mörk fyrir hlé en þrjú mörk skildu liðin að þegar gengið var til búningsherbergja.

Stjarnan hóf síðari hálfleik af miklum krafti og skoraði fyrstu fimm mörkin. Staðan var því skyndilega orðin 22–14 og heimamenn komnir með átta marka forskot.

KA vann sig smám saman aftur inn í leikinn og minnkaði muninn í þrjú mörk, 26–23. Gestirnir náðu síðan að minnka muninn í tvö mörk ítrekað undir lokin en Stjörnumenn svöruðu jafnharðan. Tandri Már Konráðsson kom Stjörnunni í 34–31 og Tóki Friðriksson skoraði síðasta mark heimamanna þegar fjórtán sekúndur voru eftir. Dagur Gautason átti lokaorðið og innsiglaði lokatölurnar, 35–33.

Ísak Logi var markahæstur Stjörnumanna með ellefu mörk en Bjarki Jóhannsson skoraði átta og Tandri Már sex. Gauti Gunnarsson bætti við fjórum mörkum. Sigurður Dan Óskarsson varði sextán skot í marki heimamanna.

Dagur Árni Heimisson var markahæstur KA með ellefu mörk og Dagur Gautason skoraði átta. Jens Bragi Bergþórssongerði fjögur mörk en Bjarni Ófeigur Valdimarsson og Morten Linder þrjú hvor. Ágúst Elí Björgvinsson varði þrettán skot og Bruno Bernat eitt.

Stjarnan er með fimm stig eftir sex leiki en KA er áfram með átta stig eftir sitt annað tap á tímabilinu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top