Valsmenn töpuðu í Slóveníu
Jón Gautur Fótó

Valur tapaði í kvöld fyrir RK Grosist Slovan í annarri umferð riðlakeppni Evrópudeildar karla. Leikið var í Hala Tivoli í Ljubljana og lauk leiknum með 34-29 sigri heimamanna.

Slovan náði góðri forystu strax í fyrri hálfleik og leiddu Slóvenarnir með átta mörkum í hálfleik, 20-12.

Valsmenn reyndu að minnka muninn eftir hlé en Slovan hélt forskotinu út leikinn og fagnaði að lokum fimm marka sigri, 34-29.

Gunnar Róbertsson var markahæstur Valsmanna með átta mörk. Bjarni í Selvindi skoraði sex mörk og Andri Finnsson bætti við fimm mörkum. Þá skoruðu Arnór Snær Óskarsson, Bessi Teitsson, Allan Norðberg og Jón Ásgeir Eyjólfsson tvö mörk hver.

Hjá Slovan var Mirko Latkovic markahæstur með sex mörk, en Tarik Mlivić og Stefan Žabić skoruðu fimm mörk hvor.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top