Fjöldi leikja fór fram í Evrópudeild karla í handbolta í kvöld þar sem íslenskir leikmenn og þjálfarar voru víða í eldlínunni. FH og Valur töpuðu sínum leikjum en Kadetten Schaffhausen, Flensburg-Handewitt og Chambéry fögnuðu sigrum. FH 33-46 Limoges (16-27) FH-ingar áttu erfitt uppdráttar gegn Limoges í Kaplakrika og þurftu að sætta sig við 13 marka tap, 46-33. Franska liðið lagði grunninn að sigrinum í fyrri hálfleik og var ellefu mörkum yfir í leikhléi, 27-16. Jón Bjarni Ólafsson var markahæstur FH með átta mörk en Símon Michael Guðjónsson skoraði sex. Leonharð Þorgeir Harðarson, Einar Rafn Eiðsson og Ómar Darri Sigurgeirsson skoruðu þrjú mörk hver. Piotr Mielczarski var markahæstur Limoges með sjö mörk og Maxime Ogando skoraði sex. Slovan 34-29 Valur (20-12) Valsmenn töpuðu með fimm mörkum gegn RD LL Grosist Slovan í Ljubljana, 34-29. Heimamenn náðu góðu forskoti strax í fyrri hálfleik og leiddu 20-12 þegar gengið var til búningsherbergja. Valur minnkaði muninn eftir hlé en náði ekki að ógna sigri Slovan. Gunnar Róbertsson var markahæstur Valsmanna með átta mörk, Bjarni í Selvindi skoraði sex og Andri Finnsson fimm. Björgvin Páll Gustavsson komst einnig á blað og skoraði eitt mark. Mirko Latkovic var markahæstur Slovan með sex mörk en Tarik Mlivic og Stefan Žabic skoruðu fimm hvor. Kadetten Schaffhausen 42-30 Izvidac (23-11) Kadetten Schaffhausen vann öruggan tólf marka sigur á Izvidac, 42-30. Svissneska liðið gerði nánast út um leikinn í fyrri hálfleik og var tólf mörkum yfir í leikhléi, 23-11. Óðinn Þór Ríkharðsson var markahæstur Kadetten ásamt Luka Maros en þeir skoruðu níu mörk hvor. Nikos Sarlos bætti við fimm mörkum. Hjá Izvidac var Fahrudin Melic markahæstur með sjö mörk og Danijel Stijovic skoraði sex. Águas Santas 22-36 Flensburg-Handewitt (10-18) Flensburg-Handewitt átti ekki í miklum vandræðum með Águas Santas í Portúgal og vann 14 marka sigur, 36-22. Þýska liðið var átta mörkum yfir í hálfleik og hélt áfram að bæta við forskotið eftir hlé. Arnar Freyr Arnarsson skoraði þrjú mörk fyrir Flensburg. Aymeric Minne var markahæstur með sex mörk og Lasse Kjær Møller skoraði fimm. Tiago Alexandre Lopes Sousa var markahæstur Águas Santas með fimm mörk. Bergischer HC 29-25 Sävehof (16-11) Bergischer HC vann fjögurra marka sigur á Sävehof, 29-25. Þýska liðið leiddi 16-11 í hálfleik og hélt sænska liðinu fyrir aftan sig út leikinn. Birgir Steinn Jónsson skoraði þrjú mörk fyrir Sävehof. Jesper Røisland var markahæstur liðsins með sjö mörk og Sebastian Durlanu skoraði sex. Fynn Hangstein skoraði átta mörk fyrir Bergischer en Tom Bergner og Sören Steinhaus gerðu sex hvor. CSM Bucuresti 25-33 Chambéry (14-17) Chambéry vann átta marka útisigur á CSM Bucuresti í Rúmeníu, 33-25. Franska liðið var þremur mörkum yfir í hálfleik og jók forskotið eftir hlé. Sveinn Jóhannsson skoraði eitt mark fyrir Chambéry. Lucas Vanegue var markahæstur liðsins með átta mörk og Elio Zammit skoraði sex. Andrei Dragan var markahæstur CSM Bucuresti með sex mörk. TTH Holstebro 32-31 Benfica (15-15) TTH Holstebro vann dramatískan eins marks sigur á Benfica, 32-31. Liðin voru jöfn í hálfleik, 15-15, og lítið skildi þau að allt til loka. Jóhannes Berg Andrason skoraði eitt mark fyrir Holstebro en Arnór Atlason er þjálfari danska liðsins. Joachim Lyng Als, Emil Grønbech Hansen og Emil Reinholdt Søndergaard skoruðu fimm mörk hver. Breki Hrafn Árnason var í leikmannahópi Benfica en komst ekki á blað. William Tomas Bogojevic og Alejandro Barbeito Soriano voru markahæstir Benfica með sjö mörk hvor. Wybrzeze Gdansk 31-31 Eurofarm Pelister (16-17) Wybrzeze Gdansk og Eurofarm Pelister skildu jöfn, 31-31, í Póllandi. Gestirnir voru einu marki yfir í hálfleik en ekkert skildi liðin að þegar upp var staðið. Þorvaldur Örn Þorvaldsson skoraði eitt mark fyrir Gdansk. Wiktor Tomczak var markahæstur heimamanna með átta mörk. Filip Kuzmanovski fór mikinn fyrir Pelister og skoraði 15 mörk en Sadou Ntanzi bætti við sjö. Saint-Raphaël 32-36 Elverum (15-20) Elverum vann góðan fjögurra marka útisigur á Saint-Raphaël, 36-32. Norska liðið lagði grunninn að sigrinum í fyrri hálfleik og leiddi 20-15 í leikhléi. Tryggvi Þórisson lék með Elverum en skoraði ekki. Frederik Emil Pedersen var langmarkahæstur liðsins með ellefu mörk en Erik Thorsteinsen Toft og Kevin Maagerø Gulliksen skoruðu fimm hvor. Hammarby 30-28 Nexe (16-15) Hammarby vann tveggja marka sigur á Nexe, 30-28. Sænska liðið var einu marki yfir í hálfleik og hélt út í jöfnum leik. Elliot Stenmalm var markahæstur Hammarby með átta mörk en Oliver Wigmark og Ludvig Lindeberg skoruðu fimm hvor. Tin Lucin skoraði sex mörk fyrir Nexe. Marítimo 40-32 Bidasoa Irun (20-13) Marítimo vann sannfærandi átta marka sigur á Bidasoa Irun, 40-32. Portúgalska liðið var sjö mörkum yfir í hálfleik og hélt góðri forystu allan síðari hálfleikinn. Délcio Moreno de Pina skoraði tíu mörk fyrir Marítimo og Jose Luciano Costa da Silva og Diogo Borges da Silva fimm hvor. Xavier Gonzalez Unciti var markahæstur Bidasoa með átta mörk. Torrelavega 33-32 Karvina (17-14) Torrelavega vann eins marks sigur á Karvina, 33-32, á Spáni. Heimamenn voru þremur mörkum yfir í hálfleik en Karvina gerði atlögu að þeim eftir hlé án þess að ná að jafna metin. Javier Muñoz Cabezón var markahæstur Torrelavega með sjö mörk en Andrés Gabriel Moyano Moglia og Jakub Prokop skoruðu sex hvor. Jonas Patzel skoraði sjö mörk fyrir Karvina. Mors-Thy 35-33 Tatabanya (20-16) Mors-Thy vann tveggja marka sigur á Tatabanya, 35-33. Danska liðið leiddi með fjórum mörkum í hálfleik, 20-16, og hélt út þrátt fyrir að ungverska liðið minnkaði muninn eftir hlé. Anton Houe var markahæstur Mors-Thy með sjö mörk og Simon Skovhus Jensen skoraði sex. Demis Cosmin Grigoras skoraði tíu mörk fyrir Tatabanya. Granollers 37-31 Buzau (20-11) Granollers vann sex marka sigur á Buzau, 37-31. Spænska liðið var níu mörkum yfir í hálfleik og gestirnir náðu ekki að vinna það forskot upp eftir hlé. Pablo Guijarro Moreno var markahæstur Granollers með sex mörk en Marcos Fis Ballester, Adrian Figueras Trejo og Pablo Urdangarin de Borbón skoruðu fimm hver. Claudiu Andrei Lazurca skoraði átta mörk fyrir Buzau. Sesvete 36-36 Tatran Presov (19-18) Sesvete og Tatran Presov skildu jöfn, 36-36, í Zagreb. Heimamenn voru einu marki yfir í hálfleik en liðin deildu stigunum eftir jafnan og markamikinn leik. Josip Tomic var markahæstur Sesvete með sjö mörk og Nikola Finek skoraði sex. Tim Jenko Bogdanic skoraði átta mörk fyrir Presov og Damián Mital sjö. Logroño La Rioja 30 - 34 Gummersbach (16-17) Gummersbach eru komnir með sín fyrstu tvö stig í keppninni eftir óvænt tap í fyrstu umferðinni. Tilen Kodrin og Nikola Roganovic voru markahæstir hjá Gummersbach með sjö mörk hvor. Nicolo D'Antino var markahæstur heimamanna með sex mörk. Elliði Snær Viðarsson skoraði fimm mörk og Teitur Örn Einarsson skoraði eitt. Garðar Ingi Sindrason komst ekki á blað.FH komst ekki nálægt Limoges
Valsmenn töpuðu í Slóveníu
Óðinn Þór með níu mörk í stórsigri Kadetten
Arnar Freyr skoraði þrjú í stórsigri Flensburg
Birgir Steinn með þrjú mörk í tapi Sävehof
Sveinn skoraði í sigri Chambéry
Holstebro vann Benfica með minnsta mun
Þorvaldur Örn á blað í jafntefli Gdansk
Tryggvi og Elverum unnu í Frakklandi
Hammarby vann Nexe
Marítimo skellti Bidasoa
Torrelavega hafði betur í spennuleik
Mors-Thy vann Tatabanya
Granollers vann Buzau
Sesvete og Tatran Presov skildu jöfn
Gummersbach með sigur
Úrslit kvöldsins

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.