Fimm leikir fóru fram í 3. umferð Meistaradeildar Evrópu í handbolta karla í gærkvöldi þar sem íslenskir leikmenn voru heldur betur í sviðsljósinu. Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússon fóru á kostum í 35-30 útisigri Magdeburg gegn Kielce í Póllandi en þeir skoruðu ellefu mörk hvor fyrir þýska liðið. Magdeburg hefur þar með unnið alla þrjá leiki sína í keppninni. Einar Bragi Aðalsteinsson átti sömuleiðis stórleik fyrir Kristianstad og skoraði tíu mörk í 37-32 tapi gegn danska liðinu GOG. Þá skoraði Bjarki Már Elísson sjö mörk fyrir París Saint-Germain sem vann stórsigur á Celje, 46-35. Parísarliðið setti jafnframt félagsmet í fjölda marka í einum leik í Meistaradeildinni. Auk þess vann Veszprém öruggan útisigur á Partizan, 37-26, og Kriens-Luzern vann sinn fyrsta sigur í sögu Meistaradeildarinnar þegar liðið lagði Kolstad, 34-32. Hér að neðan má sjá hápunkta úr öllum fimm leikjum gærdagsins í Meistaradeildinni. Kielce - Magdeburg 30-35 Kristianstad - GOG 32-37 PSG - Celje 46-25 Partizan - Veszprém 26-37 Kriens-Luzern - Kolstad 34-32

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.