Hátt í 30 manns búnir að láta vita að þeir vilji spila
Raggi Óla

16-liða úrslit Powerade-bikars karla hefjast í kvöld með tveimur leikjum. Fimm leikir fara fram annað kvöld en umferðinni lýkur ekki fyrr en 17. október þegar ÍBV 2 og Þór mætast í Vestmannaeyjum.

Einn af áhugaverðustu leikjum umferðarinnar er viðureign Hvíta riddarans og Gróttu sem fram fer annað kvöld. Einar Ingi Hrafnsson sagði í þar síðasta þætti Handkastsins að áhuginn á að spila bikarleikinn væri slíkur að Ægir Líndal, þjálfari Hvíta riddarans, ætti vandasamt verkefni fyrir höndum við val á leikmannahópnum.

„Hugur minn er hjá Ægi Líndal, þjálfara Hvíta riddarans, fyrir bikarleik liðsins gegn Gróttu. Ég held að það séu 30 manns búnir að láta vita að þeir vilji spila þann leik. Það er alvöru stress hjá mínum manni að ákveða hópinn,“ sagði Einar Ingi.

Þegar hann var beðinn um að nefna leikmenn sem væru klárir í slaginn nefndi hann tvo til sögunnar en útilokaði sjálfan sig.

„Egill Strange er klár og Eyþór Vestmann er klár. Ég er hins vegar ekki klár, ég er að fara á herrakvöld Stjörnunnar.“

Þótt bæði félög eigi lið í Grill66-deildinni er bikarlið Hvíta riddarans að mestu skipað leikmönnum sem leika með Hvíta riddaranum 2 í 2. deild, fremur en leikmönnum Grill66-liðs félagsins.

Leikur Hvíta riddarans og Gróttu hefst klukkan 19:30 í Myntkaup-höllinni í Mosfellsbæ annað kvöld.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top