Blær Hinriksson skoraði sex mörk þegar Leipzig vann öruggan sigur á TuS N-Lübbecke, 33–26, á heimavelli í þýsku 2. Bundesligunni í gær. Þetta var sjötti sigur Leipzig í fyrstu sjö deildarleikjum tímabilsins. Leikurinn var jafn framan af en heimamenn náðu smám saman undirtökunum. Blær kom Leipzig í 15–9 undir lok fyrri hálfleiks og þegar flautað var til leikhlés var munurinn sex mörk, 16–10. Leipzig hélt áfram að bæta við forskotið eftir hlé og náði tíu marka forystu, 28–18, þegar um þrettán mínútur voru eftir. Munurinn varð mest ellefu mörk, 31–20, áður en gestirnir minnkuðu bilið á lokakaflanum. Sigur heimamanna var þó aldrei í hættu og að lokum skildu sjö mörk liðin að. Anton Voß var markahæstur hjá Leipzig með sjö mörk en Blær og Franz Semper komu næstir með sex mörk hvor. Þá átti Anadin Suljaković góðan leik í marki heimamanna og varði fimmtán skot. Með sigrinum fór Leipzig upp í annað sæti deildarinnar til bráðabirgða með tólf stig eftir sjö leiki. Potsdam er á toppnum með sama stigafjölda en hefur leikið einum leik færra og unnið alla sex leiki sína. Elbflorenz, Hagen og Lübeck-Schwartau koma þar á eftir með tíu stig og eiga einnig leik til góða á Leipzig.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.