Handboltaskóli Framtíðarinnar aftur til Austurríkis
Handboltaskóli Framtíðarinnar

Handboltaskóli Framtíðarinnar stendur fyrir vikulöngu handboltanámskeiði í Hard í Austurríki dagana 12.–19. júlí 2027. Þetta verður annað sumarið í röð sem skólinn býður upp á ferðina, sem er ætluð strákum og stelpum fæddum árin 2011–2013.

Skráning í Handboltaskólann fer fram hér.

Handkastið býður upp á afsláttarkóðann HANDKASTID sem veitir 10.000 króna afslátt af námskeiðinu. Afslátturinn gildir til 30. október. Fullt verð er 254.990 krónur en með kóðanum verður verðið 244.990 krónur.

Handboltaskóli Framtíðarinnar

Innifalið í verðinu er flug, gisting, rútuferðir til og frá flugvelli, fullt fæði, handboltaþjálfun, styrktaræfingar, fyrirlestrar og bolur merktur skólanum. Flogið verður til Zürich í Sviss og þaðan ekið með rútu til Hard.

Þjálfarar á námskeiðinu verða Hannes Jón Jónsson, Arnar Daði Arnarsson, yfirþjálfari Handboltaskóla Framtíðarinnar, og Harpa Jóhannsdóttir, styrktarþjálfari, auk annarra þjálfara. Fararstjórn verður í höndum Hannesar Jóns og Hörpu, sem eru búsett í Hard.

Handboltaskóli Framtíðarinnar

Æft verður fimm daga ferðarinnar, einu sinni til tvisvar á dag, auk styrktaræfinga. Æfingarnar fara fram í íþróttahöll austurríska úrvalsdeildarliðsins Alpla HC Hard, þar sem Hannes Jón starfaði sem þjálfari um árabil.

Handboltaskóli Framtíðarinnar

Hard stendur við Bodensee-vatn, skammt frá landamærum Þýskalands og Sviss. Milli æfinga gefst þátttakendum kostur á að fara í sund og njóta ýmiss konar afþreyingar við vatnið, meðal annars kajaka, hjólabáta og róðrarbretta. Þá er fyrirhuguð dagsferð á fjallið Pfänder, þar sem útsýni er yfir vatnið og Alpana.

Rúmlega 40 íslenskir iðkendur tóku þátt í fyrstu ferð skólans til Hard síðastliðið sumar, ásamt tíu strákum frá Austurríki. Stefnt er að áframhaldandi þátttöku austurrískra iðkenda næsta sumar og að stúlkur þaðan bætist einnig í hópinn.

Handboltaskóli Framtíðarinnar

Að sögn skipuleggjenda gekk ferðin afar vel og voru þátttakendur ánægðir með bæði æfingarnar og afþreyinguna.

„Mér fannst ferðin ógeðslega skemmtileg. Ég lærði mikið nýtt og kynntist mörgum nýjum. Ég myndi klárlega fara aftur. Svo var umhverfið mjög fallegt og skemmtilegt,“ sagði einn þátttakenda.

Takmarkaður fjöldi kemst í ferðina og uppselt var síðastliðið sumar. Skráning fer fram á Abler. Munið að nota afsláttarkóðann HANDKASTID fyrir 30. október.

Skráning í Handboltaskólann fer fram hér.

Handboltaskóli Framtíðarinnar

Myndir og myndskeið frá ferðinni síðastliðið sumar má sjá á Instagram-síðu Handboltaskóla Framtíðarinnar.

Handboltaskóli Framtíðarinnar

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top