Viktor Szilagyi, framkvæmdastjóri þýska stórliðsins THW Kiel, hefur brugðist við orðrómi um að spænski leikstjórnandinn Erik Balenciaga sé á leið til félagsins frá MT Melsungen næsta sumar. RT Handball greindi frá því á dögunum að Balenciaga væri á leið til Kiel og myndi þar fylla skarð Færeyingsins Eliasar Ellefsen á Skipagøtu sem gengur til liðs við Álaborg næsta sumar. Balenciaga er 33 ára gamall og hefur verið í stóru hlutverki hjá Melsungen undanfarin tímabil. Hann er þekktur fyrir hraða, góðan leikskilning og öflugan maður-á-mann leik. Szilagyi segir hins vegar í samtali við þýska miðilinn Handball-World að félagið hafi ekki gengið frá samningi við spænska leikstjórnandann. „Einn daginn var ég spurður út í Leif Tissier og í dag Erik Balenciaga. Ég get fullvissað ykkur um að enginn leikmaður hefur skrifað undir hjá THW Kiel sem við höfum ekki þegar tilkynnt,“ sagði Szilagyi. Hann bendir jafnframt á að Kiel sé í góðri stöðu hvað varðar leikmannahópinn fyrir næstu tímabil og félagið þurfi ekki að flýta sér að finna arftaka Eliasar. Kiel er meðal annars með Domen Makuc, Julian Köster og Rasmus Ankermann á samningum til ársins 2030 auk þess sem Eric Johansson og Emil Madsen eru samningsbundnir félaginu til ársins 2028. Samkvæmt þýska miðlinum HNA eru jafnframt vísbendingar um að Melsungen muni ekki framlengja samning Balenciaga sem rennur út næsta sumar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.