Ótrúleg mistök hjá mótherja Vals – Sigurmarkið dæmt af vegna leikhlés
Egill Bjarni Friðjónsson

Ótrúleg atburðarás átti sér stað á lokasekúndunum þegar ungverska liðið Tatabánya, næsti mótherji Vals í Evrópudeildinni, gerði 31-31 jafntefli gegn Szigetszentmiklós í ungversku úrvalsdeildinni um helgina.

Tatabánya virtist hafa tryggt sér sigur á lokasekúndunum en sigurmark liðsins fékk ekki að standa vegna afar illa tímasetts leikhlés.

Heimamenn voru með yfirhöndina lengst af í leiknum og komust meðal annars í 8-3 í fyrri hálfleik. Gestirnir neituðu hins vegar að gefast upp og jöfnuðu metin í 31-31 þegar fimm sekúndur voru eftir. Leikmenn Tatabánya voru fljótir að taka miðju og skutu boltanum yfir völlinn í autt mark gestanna. Boltinn hafnaði í netinu en markið var dæmt af þar sem leikhlé hafði verið tekið á sama tíma.

Eftir leikhléið átti Tatabánya enn fimm sekúndur til þess að tryggja sér sigurinn en tókst ekki að skapa sér nægilega gott marktækifæri. Markvörður gestanna varði síðustu tilraun heimamanna og niðurstaðan því 31-31 jafntefli.

Benedek Éles var markahæstur heimamanna með sjö mörk en markvörðurinn Márton Székely varði 17 skot.

Tatabánya hefur átt erfitt uppdráttar í Evrópudeildinni og tapað fyrstu tveimur leikjum sínum í riðlinum. Ungverska liðið mætir Val á Hlíðarenda í kvöld í þriðju umferð keppninnar en leikurinn hefst klukkan 18:45.

Valur er með tvö stig í riðlinum eftir sigur á Mors-Thy í fyrstu umferðinni en tapaði gegn Slovan Ljubljana í síðustu viku.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top