Snýr til baka eftir tæplega árs fjarveru
Michael Hundt / dpa Picture-Alliance via AFP

Góð tíðindi hafa borist frá þýska stórliðinu Flensburg fyrir leik liðsins gegn rúmenska liðinu Buzău í Evrópudeildinni í kvöld. Þýski landsliðsmaðurinn Luca Witzke er loksins að snúa aftur á handboltavöllinn eftir að hafa verið frá keppni síðan í nóvember á síðasta ári.

Witzke hefur glímt við langvarandi meiðsli og ekki leikið keppnisleik í tæpt ár. Nú er hins vegar komið að því að hann snúi aftur í leikmannahóp Flensburg.

Aleš Pajović, þjálfari Flensburg, staðfesti á heimasíðu félagsins að Witzke verði að minnsta kosti á varamannabekknum gegn Buzău í kvöld og vonir standi til að hann geti spilað einhverjar mínútur.

„Hann er virkilega spenntur fyrir því að vera með. Það er auðvitað ekki auðvelt að hafa verið frá í næstum heilt ár og ná síðan aftur hundrað prósent getu,“ sagði Pajović.

Witzke hefur undanfarna daga og vikur æft með samstarfsfélögum Flensburg, Sønderjyske og DHK Flensborg, til þess að koma sér aftur í leikform. Lettinn, Endjis Kusners sem lék með Herði um árabil leikur með DHK Flensborg.

Flensburg hefur farið vel af stað í þýsku Bundesligunni og vann meðal annars öruggan sigur á Hannover um síðustu helgi.

Fram undan er jafnframt stórleikur gegn Füchse Berlin í þýsku Bundesligunni á sunnudaginn en Pajović leggur áherslu á að leikmenn einbeiti sér fyrst að verkefninu gegn Buzău. Danski landsliðsmaðurinn Niclas Kirkeløkke verður áfram fjarverandi en hinn ungi línumaður Moritz Detlefsen tekur sæti hans í leikmannahópnum.

Leikur Flensburg og Buzău hefst klukkan 18:45 að íslenskum tíma í kvöld. Tvö íslensk lið verða í eldlínunni í Evrópudeildinni í kvöld. FH mætir Maritímo í Portúgal og Valur tekur á móti ungverskaliðinu, Tatabánya klukkan 18:45 á Hlíðarenda.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top