Gottfridsson sagður vera utan sænska landsliðshópsins
JOHAN NILSSON / TT News Agency via AFP

Jim Gottfridsson verður ekki í landsliðshópi Svíþjóðar fyrir komandi leiki í undankeppni Evrópumótsins í nóvember, samkvæmt heimildum sænska miðilsins Sportbladet.

Michael Apelgren, landsliðsþjálfari Svíþjóðar, tilkynnir landsliðshóp sinn síðar í dag en Svíar mæta Grikklandi og Lúxemborg í undankeppni EM.

Gottfridsson, sem er 34 ára gamall, hefur verið einn af lykilmönnum sænska landsliðsins undanfarinn áratug en framtíð hans með landsliðinu virðist nú í óvissu.

Gottfridsson yfirgaf ungverska stórliðið Pick Szeged á síðasta tímabili eftir að samningi hans við félagið var rift við óvenjulegar aðstæður. Hann ákvað í kjölfarið að snúa aftur til uppeldisfélags síns, IFK Ystad, sem leikur í næstefstu deild Svíþjóðar.

Þrátt fyrir að Gottfridsson hafi farið mikinn með Ystad á tímabilinu virðist það ekki duga honum til að halda sæti sínu í landsliðinu. Gottfridsson hefur áður lýst því yfir að hann stefni á að leika með Svíþjóð á Ólympíuleikunum í Los Angeles árið 2028.

Samkeppnin um stöðurnar í sænska landsliðinu er hins vegar mikil og hafa ungir leikmenn á borð við Nikola Roganovic og Axel Månsson vakið athygli með frammistöðu sinni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top