Andrea Gunnlaugsdóttir, markvörður Gróttu, gerði sér lítið fyrir og greip vítakast frá færeysku landsliðskonunni Jóan Rúnadóttur í leik Gróttu og KA/Þórs í 5. umferð Olís-deildar kvenna á föstudaginn í síðustu viku. Atvikið var sýnt í Handboltahöllinni þar sem frammistaða Andreu í marki Gróttu var einnig til umræðu. Hörður Magnússon, þáttastjórnandi, kvaðst sjaldan hafa séð markvörð grípa vítakast með þessum hætti. „Maður hefur séð markmann verja vippu en þarna er hún á línunni,“ sagði Einar Ingi Hrafnsson um vörsluna. Grótta mætir Íslands-, deildar- og bikarmeisturum Vals í dag klukkan 15:00 á meðan stigalaust lið KA/Þórs fær Stjörnuna í heimsókn á Akureyri en sá leikur hefst klukkan 17:00 og er lokaleikur 5.umferðar Olís-deildar kvenna.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.