Handkastið greindi frá því í gær að bæði markvörðurinn, Niklas Landin og sænska skyttan, Lukas Nilsson væru komnir á meiðslalistann hjá danska stórliðinu Álaborg eftir að hafa meiðst um síðustu helgi. Landin verður frá keppni í allt að tvær vikur eftir að hafa hlotið djúpan skurð á fingri sem þurfti að sauma. Nilsson verður hins vegar frá í fjórar til sex vikur vegna nárameiðsla. Meiðslavandræði Álaborgar halda áfram en liðið var án fjögurra öflugra leikmanna þegar það vann nauman 34-33 sigur á HC Zagreb í Meistaradeild Evrópu í gærkvöldi. Mads Hoxer er nýjasti leikmaðurinn sem bætist á meiðslalistann. Hægri skyttan, Hoxer gat ekki tekið þátt í leiknum vegna bakmeiðsla og fylgdist því með liðsfélögum sínum úr stúkunni. Ekki liggur fyrir hversu lengi Hoxer verður frá keppni. Þá er norska stórstjarnan Sander Sagosen enn í endurhæfingu og ekki tilbúinn til að snúa aftur á völlinn. Þrátt fyrir þessi áföll tókst Álaborg að leggja Zagreb að velli, 34-33, þar sem Thomas Arnoldsen, Juri Knorr og Tobias Nielsen skoruðu sex mörk hver. Álaborg á fram undan þétta leikjadagskrá en liðið tekur á móti Mors-Thy í dönsku úrvalsdeildinni á sunnudaginn áður en það mætir Celje í Meistaradeildinni í næstu viku.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.