Enginn leikmaður erlendis í U21 árs hópnum
Egill Bjarni Friðjónsson

Ágúst Þór Jóhannsson og Maksim Akbachev, þjálfarar U21 árs landsliðs karla, hafa valið 23 leikmenn til æfinga í nóvember. Afturelding á flesta fulltrúa í hópnum, sex talsins.

Athygli vekur að allir leikmenn hópsins leika hér á landi. Andri Erlingsson og Baldur Fritz Bjarnason, leikmenn Kristianstad, og Garðar Ingi Sindrason, leikmaður Gummersbach, eru því ekki á meðal þeirra sem fá boð að þessu sinni.

Bernard Darkoh Kristjánsson, leikmaður ÍR, er heldur ekki valinn þrátt fyrir að Elís Þór Aðalsteinsson, leikmaður ÍBV, sé frá vegna slitins krossbands.

Þá er Jason Stefánsson, leikmaður ÍBV, ekki í hópnum. Jason sleit krossband á æfingu með unglingalandsliðinu sumarið 2025 en er snúinn aftur í lið ÍBV. Hinsvegar er Marel Baldvinsson kominn aftur í hópinn en hann er einnig að koma til baka eftir krossbandaslit.

Afturelding á sex leikmenn í hópnum og Valur fjóra. FH og KA eiga þrjá fulltrúa hvort félag, Fram, ÍR og Selfoss tvo hvert og ÍBV einn.

Hópurinn er eftirfarandi:

Alexander Ásgrímsson ÍR

Ágúst Guðmundsson FH

Andri Freyr Friðriksson KA 

Antoine Óskar Pantano  FH

Bessi Teitsson Valur

Dagur Árni Heimisson KA

Dagur Leó Fannarsson Valur

Daníel Bæring Grétarsson Afturelding

Daníel Montoro Valur

Hákon Garri Gestsson Selfoss

Harri Halldórsson Afturelding

Ingvar Dagur Gunnarsson FH

Jens Bragi Bergþórsson  KA

Jens Sigurðarson Valur

Jökull Blöndal Björnsson ÍR

Jónas Karl Gunnlaugsson Selfoss

Leó Halldórsson Afturelding

Magnús Dagur Jónatansson ÍBV

Marel Baldvinson Fram

Max Emil Stenlund Fram

Sigurjón Bragi Atlason Afturelding

Stefán Magni Hjartarson Afturelding

Ævar Smári Gunnarsson Afturelding

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top