Agnar Smári gengur í raðir ÍBV
Sævar Jónasson

Agnar Smári Jónsson hefur gert félagaskipti frá Val yfir í ÍBV og gæti því verið á leið aftur á handboltavöllinn eftir að hafa lagt skóna á hilluna í vor.

Agnar Smári varð Íslandsmeistari með Val á síðustu leiktíð og ákvað í kjölfarið að leggja skóna á hilluna. Nú virðist hann hins vegar ætla að taka fram skóna á nýjan leik, að minnsta kosti tímabundið.

Gera má ráð fyrir því að Agnar Smári verði í leikmannahópi ÍBV 2 þegar liðið tekur á móti Þór í 16-liða úrslitum Powerade-bikars karla á morgun, laugardag.

Agnar Smári þekkir vel til í Vestmannaeyjum enda lék hann um árabil með ÍBV og varð meðal annars Íslandsmeistari með Eyjamönnum árin 2014 og 2018.

Það verður því fróðlegt að sjá hvort þessi reynslumikli handboltamaður láti til sín taka á nýjan leik í búningi ÍBV.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top