Gunnar Róberts hefur heillað landsliðsþjálfarann
Baldur Þorgilsson

Gunnar Róbertsson, leikmaður Vals, hefur vakið athygli Snorra Steins Guðjónssonar, landsliðsþjálfara, með framúrskarandi frammistöðu sinni í upphafi tímabilsins.

Snorri Steinn var spurður hvort Gunnar, sem er fæddur árið 2008, hefði verið nálægt því að komast í 20 manna landsliðshópinn fyrir leikina gegn Úkraínu og Eistlandi í undankeppni EM 2028 í nóvember.

Snorri Steinn velur 20 leikmenn fyrir fyrstu leiki undankeppninnar

„Það voru nokkrir drengir sem ég fylgdist með án þess að fara í nokkur nöfn. Gunni ásamt öðrum hafa vakið athygli og heillað mig,“ sagði Snorri Steinn.

Hann telur unga leikmenn banka á landsliðsdyrnar en leggur áherslu á að þeir sýni þolinmæði.

„Ég er ekki að setja pressu á þá en þetta eru klárlega okkar framtíðarlandsliðsmenn og það kemur að því að það verður kallað í þá. Hvort þeir séu tilbúnir eða ekki, maður veit það ekki, en af því sem maður hefur séð þá eru þeir klárlega tilbúnir að verða nýliðar. Það tekur síðan tíma að taka næsta skref. Þeir verða að vera þolinmóðir.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top