Mikkel Hansen fer í mál við streymisrisa – Milljónir í húfi
HENNING BAGGER /AFP

Danska handboltagoðsögnin Mikkel Hansen er meðal 13 danskra afreksíþróttamanna sem hafa höfðað mál gegn streymisveitunni HBO Max vegna meintrar óheimillar notkunar á myndum af þeim í auglýsingaskyni í tengslum við Ólympíuleikana í París árið 2024.

Samkvæmt danska fjölmiðlinum MediaWatch telja íþróttamennirnir að HBO Max hafi notað myndir af þeim í markaðsefni án þess að afla nauðsynlegra heimilda. Íþróttamennirnir fara sameiginlega fram á rúmlega tvær milljónir danskra króna í bætur, jafnvirði um 40 milljóna íslenskra króna.

Hansen er einn þekktasti handknattleiksmaður sögunnar og lauk glæsilegum ferli sínum eftir Ólympíuleikana í París þar sem hann varð ólympíumeistari með danska landsliðinu.

Málið verður tekið fyrir í danska viðskipta- og siglingadómstólnum, Sø- og Handelsretten, þann 26. október.

Ekki liggur fyrir hver niðurstaða málsins verður en deilan snýst um rétt íþróttamanna til að stjórna notkun á eigin myndum í auglýsingum og markaðssetningu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top