Ótrúleg dramatík átti sér stað í lok leiks Eisenach og Gummersbach í þýsku Bundesligunni í gærkvöldi. Gummersbach, undir stjórn Guðjóns Vals Sigurðssonar, virtist hafa tryggt sér sigur á ævintýralegan hátt þegar Miro Schluroff skoraði beint úr aukakasti eftir að leiktíminn rann út. Dómararnir skoðuðu hins vegar atvikið á myndbandi og dæmdu markið af. Gummersbach hafði tveggja marka forskot, 28-26, þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir af leiknum en heimamenn í Eisenach neituðu að gefast upp. Stephan Seitz jafnaði metin í 28-28 þegar aðeins sjö sekúndur voru eftir og allt stefndi í jafntefli. Gummersbach fékk hins vegar síðasta tækifærið þegar liðið fékk aukakast nálægt hliðarlínunni eftir að leiktíminn rann út. Þýski landsliðsmaðurinn Miro Schluroff gerði sér lítið fyrir og þrumaði boltanum í netið úr afar þröngri stöðu. Leikmenn Gummersbach fögnuðu ákaft enda virtist Schluroff hafa tryggt liðinu ótrúlegan sigur með síðasta kasti leiksins. Dómarar leiksins, þær Kuttler og Merz, ákváðu hins vegar að skoða framkvæmd aukakastsins á myndbandi. Eftir myndbandsskoðun komust þær að þeirri niðurstöðu að Schluroff hefði brotið reglurnar við framkvæmd kastsins. Hann hafði lyft báðum fótum frá gólfinu þegar hann kastaði boltanum og því var markið dæmt af. Niðurstaðan varð því 28-28 jafntefli, Gummersbach til mikilla vonbrigða. Alex Dujshebaev var markahæstur Gummersbach með átta mörk og Nikola Roganović skoraði sjö. Schluroff skoraði fimm mörk en það sjötta, sem hefði tryggt sigurinn, fékk ekki að standa. Gummersbach er með átta stig eftir fyrstu níu umferðirnar í þýsku Bundesligunni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.